Valmynd
Velkominn gestur Leita | Virk efni | Meðlimir | Tengjast | Nýskráning

Hvaða galla á að kaupa og hvar fást þeir? Möguleikar · Skoða
Stebbi
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 9:27:12 PM

Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 6/16/2009
Póstar: 11
Staðsetning: Reykjavík\Akureyri
Ég var að velta því fyrir mér hvernig galla maður ætti að fá sér d'oh! . Ég er nýr í þessum heimi og veitti ekki af smá leiðbeiningum. Ef það er eitthvað sem ég hef lært þá er það að maður á ekki að spara við kaup á hlífðarfatnaði, sbr.

http://ruddar.spjallbord.net/yaf_postst2929_G243240ur-galli-.aspx

Ég stefni á að fá mér leðurgalla (þori varla öðru miðað við fordómana í garð Gore-tex á þessari síðu). Langar mest í Rukka, hef heyrt að það sé toppurinn á tilverunni. Hef einnig heyrt að Icon og Dainese séu mjög góð merki. Hvar fást þessi merki núna, sérstaklega Rukka?? Veit að Mótormax var með Rukka en núna eru þeir búnir að loka.

Allar ábendingar og reynslusögur af göllum eru vel þegnar.
Styrktaraðili
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 9:27:12 PM
Xodus ehf
Mr.Flanker
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 10:29:58 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 4/28/2007
Póstar: 1,136
Staðsetning: Þar sem stuðið er
rukka er bara með gore-tex, ég á þannig sjálfur en nota hann bara mjög snemma á vorin eða seint á haustin þegar mjög kalt er og mikil rigning.

Dainese fæst hjá Púkanum, ég er búinn að hjóla í Dainese frá ca. 2000. Mjög dýrt en ég er ekkert svakalega ánægður með gæðin og endinguna, ætla bókað að prófa eitthvað annað næst.

Icon telst ekkert sérstakt í racer heiminum, þó að sumir eiga eftir að vera mér ósammála. Þeir eru kannski meira í street/stunt fatnaði en mér dytti aldrei í hug að nota þannig á racer.

Svo er til Alpinestars, BKS, Arlen Ness, Berik o.s.frv.

Ekki spara í þessum flokki og fáðu þér líka bakbrynju og jafnvel líka brjóstbrynju. Ég og fleiri hérna fara ekki útúr húsi án þeirra.

Tékkaðu á http://www.sportbiketrackgear.com/

It's not all about how much money you spend on the bike, it's how you drive it!

http://www.road-race.net
http://roadrace.spjallbord.net/
Toti
Póstað: Tuesday, June 23, 2009 10:46:47 PM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 5/16/2008
Póstar: 101
Staðsetning: RVK
Til að byrja með (og eins og Flanker benti á) ætla ég að mæla með að þú skoðir búðina og video-in hjá Sportbiketrackgear. Var að sjálfur að uppgötva þessa síðu og finnst review video-in þeirra alger snilld. Einnig eru þeir oft með góða díla í gangi. T.d. 20% afsláttur af Icon núna.

Búð - www.sportbiketrackgear.com
Video - http://www.youtube.com/Sportbiketrackgear (Góð yfirferð á göllum m.a. Icon og Dainese, brynjum, hjálmum og öðrum aukabúnaði.)


Mættir deila með okkur hvernig hjól þú átt/ætlar að fá þér. En það sem ég mundi byrja á að gera er að ákveða hvernig þú ætlar að hjóla og hversu miklu þú ætlar að eyða í galla. (High Class merkjavöru leður er dýrt - Oftast um og yfir 180 þús.)

Touring: Allra veðra (of langferða) akstur.
Ef þú ert að fara að hjóla mikið út á land sem og notast mikið við hjólið í allskonar veðri (s.s. Touring), þá mundi ég skoða GoreTex galla. Rukka eiga vel við þar.

Street: Innanbæjar akstur.
Ef þú ert hinsvegar meira í svona sunnudagsakstri og tekur hjólið ekki út nema í góðu veðri þá er kannski allt í lagi að fara að skoða svona Icon Mesh eða leður jakka og buxur. T.d. Icon (meira sport/stunt oriented eða Frank Thomas (meira touring oriented).

Race: Brautar, sem og hraðakstur.
Og svo ef þú ætlar að fá þér eða átt brautarhjól/racer, þá mundi ég ekki skoða neitt annað en 1pc og 2pc leðurgalla (með 360° rennilás). Þar eru Dainese (Fæst í Púkanum), AlpineStars (Bílabúð Benna), Spidi (Nítró) og IXS (Mótormax) eru dæmi um fín merki.


Svo er málið bara að máta sem mest. Fara á alla staði og prufa alla galla og versla svo það sem þér líður best í, passar vel og lookar vel á hjólinu.

Þetta er auðvitað bara mitt persónulega álit og enganvegin tæmandi, en vona að þetta hjálpi þér eitthvað.

Kv. Tóti

2007 Yamaha R1
Drullusokkur#49
Póstað: Wednesday, June 24, 2009 6:20:53 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 1/7/2007
Póstar: 391
Staðsetning: Vestmannaeyjar
Frank Thomas hafa líka reynst vel og voru allavega á góðu verði þegar MotorMax var og hét.

Husaberg 650FE
Yamaha R6 '08 (selt)
Yamaha R1 '00 (selt)
Yamaha R1 '07 (selt)
Yamaha FZ6 '06 (selt)
Yamaha Midnight Warrior '05 (selt)
Suzuki Ts80 '88
Romet Pony 50 '87
------
Stebbi
Póstað: Wednesday, June 24, 2009 9:28:22 AM

Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 6/16/2009
Póstar: 11
Staðsetning: Reykjavík\Akureyri
Það er synd og skömm að leðurgallarnir frá Rukka skulu ekki fást hérlendis Merlin og Lancelot gallarnir eru ruddalega flottir (Rukka).

Ég stefni á að fá mér nakedbike og reikna með að vera aðallega í bænum á hjólinu en vil þó geta farið út þó það séu nokkrir dropar að falla af himnum ofan(vill nota hjólið sem mest).

Eftir þessar ábendingar fór ég að skoða 2pc leðurgalla, lýst vel á þannig. En hvernig er með þá, eru þeir flestir vatsheldir? M4 gallinn frá Dainese leit ágætlega út en ég verð að efast um að hann sé alveg vatnsheldur.

En Flanker er þín reynsla á Dainese það slæm að þú myndir alls ekki mæla með þeim? Hvernig galla myndiru frekar fá þér?

Eitt en að lokum, ég er að skoða tryggingar. Flokkast nakedbike þar undir racers?
Mr.Flanker
Póstað: Wednesday, June 24, 2009 10:52:11 AM

Tign: Meðlimur
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 4/28/2007
Póstar: 1,136
Staðsetning: Þar sem stuðið er
Ég á 2pc Flanker frá Dainese, sem er ekkert ósvipaður og M4 nema meira "race". Að öðru leiti eru þeir svipaðir hvað varðar frágang og þess háttar. M4 er reyndar með meira D-Stone fabric minnir mig sem er alls ekkert vatnshelt, minn galli heldur vatni mjög vel nema þar sem D-Stone efnið er. D-Stone er svarta teygjuefnið sem er í náranum og undir höndum.

Ég myndi ekki segja að ég gæti ekki mælt með Dainese, en hann hefur ekki staðist mínar væntingar hvað varðar endingu, en gallinn er notaður oft á hverjum degi. Ég er búin að láta skipta um alla franska rennilása, flesta rennilása og hálf sauma allt draslið saman upp á nýtt þar sem saumarnir hreinlega gefa sig. Það er sama sagan með bæði hanskana, gallann, skóna og bakbrynjuna.

Hanskarnir sérstaklega eru slappir, þar eru allir frönsku rennilásarnir ónýtir og þeir líkjast meira grifflum en hönskum þar sem leðrir á fingrunum er bara farið. Rennilásarnir á skónum fóru fljótlega að verða leiðinlegir en einnig er allt fóðrið inní þeim ónýtt.

Ég ætla að skoða BKS, Arlen Ness, Berik og Alpinestars næst í göllum. Í hönskum ætla ég að skoða Held, RS Taichi og A*, í skóm Sidi og A*

It's not all about how much money you spend on the bike, it's how you drive it!

http://www.road-race.net
http://roadrace.spjallbord.net/
rusticolus
Póstað: Tuesday, July 07, 2009 9:49:06 AM

Tign: Nýliði
Hópar: Meðlimur

Nýskráður: 3/18/2007
Póstar: 17
Staðsetning: Reykjavík
Nevermind, óþarfa innlegg, það var búið að svara þessari spurningu fyrir mig... :P

Jónatan Jónsson
Honda CBR 600rr
Notendur að skoða þetta efni
Gestur Gestsson


Stökkva á spjall
Þú getur ekki póstað nýju efni í þetta spjall.
Þú getur ekki svarað efni í þessu spjalli.
Þú getur ekki eytt póstum þínum á þessu spjalli.
Þú getur ekki breytt póstum þínum á þessu spjalli.
Þú getur ekki búið til kannanir á þessu spjalli.
Þú getur ekki kosið í könnunum á þessu spjalli.

Knúið af Yet Another Forum.net útgáfu 1.9.1.8 (NET v2.0) - 3/29/2008
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.
Þetta spjall er 0.191 sekúndur frá 0-100.


Heyrst hefur
Punky Design 
 
auglysingar.is, fríar smáauglýsingar á netinu 
 
Netverslanir eshop 
 
Road Race deild AÍH 
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook