Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Lögreglan mælir ökuhraða úr lofti
CBR1000RR Offline
#1 Posted : 4. júlí 2009 09:50:33(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 5.7.2007(UTC)
Posts: 758
Man
Location: hér og þar

Lögreglan á Hvolsvelli fór í gærkvöldi í vegaeftirlit með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Voru ökumenn hraðamældir úr lofti og á Sólheimasandi voru þrír sektaðir fyrir of hraðan akstur. Blaðamaður mbl.is slóst með í för og fylgdist með samstarfi þessa tveggja löggæslusveita.

Einn þeirra sem ók of hratt mældist á 130 km hraða og reyndist vera útlendur ferðamaður sem greiddi 50 þúsund króna sekt á staðnum. Lögreglan er með posa og getur tekið við greiðslukortagreiðslum og fá ökumenn sem ganga strax frá sektinni afslátt.

Landhelgisgæslan sinnir víða löggæslustörfum . mbl.is/Dagur

Umferð var yfir meðallagi og óku flestir prúðmannlega og á löglegum hraða. Lögreglan á Hvolsvelli sagði að með Super Puma þyrlu Landhelgisgæslunnar væri hægt að fylgjast með umferðinni á stóru svæði og þar sem ökumenn eiga kannski síst von á slíku eftirliti.

Einn þeirra sem stöðvaður var sagði í samtali við blaðamann að sér hefði vissulega brugðið ögn í brún við það að vera bent að stöðva bifreiðina úr þyrlu á flugi og að það hefði komið honum nokkuð á óvart en að hann hefði líka verið á hraðferð og laumast til að aka vel yfir löglegum hraða.


http://www.mbl.is/mm/fre...hradamaelingar_ur_lofti/
Sponsor
Xodus ehf
wolfman Offline
#2 Posted : 4. júlí 2009 11:54:22(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.4.2008(UTC)
Posts: 254

verð nú að segja mikið rosalega er þetta hallærislegt, þetta er svona eins og að skjóta belju í tunnu ( verandi á þyrlu og skjóta á liðið niðri sem á sér einskis von ).

Já það ber vel í "veiði" og öllum ráðum beytt til að fá sem mestann peninginn í ríkissjóð ( ekki veitir af ), maður hefur það á tilfinningunni að hugsunin sé að reyna að nappa fólk með öllum tiltækum ráðum eins og að liggja í leyni og þess háttar kúnstir- alveg ömurlegt! Ef ætlunin er virkilega sú að stöðva eða koma í veg fyrir "hrað" akstur og fá bætt öryggi væri þá ekki sniðugra fyrir lögregluna að vera sýnileg í umferð eða við umferð heldur en að vera í einhverjum felu/njósna/eltingarleik??? Væri ekki alveg eins hægt fyrir lögregluna að líma 5000 kall á stéttina á Laugarveginum og bíða átekta uns einhver kæmi auga á hann og tæki hann upp og þá yrði sá hinn sami handtekinn fyrir stuld???

80 km hraði er ekki hraði.... Not talking

Af hverju höfum við ekki bara 11 km hámarkshraða og útrýmum sem flestum slysum ?, getum dregið fram gamlar hestakerrur og gert þær upp?Think
Æi ég veit ekki maður hefði haldið að þróunin væri bættar samgöngur sem þýðir betri vegir , hraðskreiðari faraskjóttar og minni tími í að komast á milli staða? Ekki vildi ég bjóða í það að þurfa að ganga til Selfoss frá Rvk og notast við vörður á leiðinni ( sem tæki marga marga klukkutíma býst ég við lol )
Palli Offline
#3 Posted : 4. júlí 2009 12:49:27(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.12.2007(UTC)
Posts: 142
Man

Svo er talað um niðurskurð. Ég sé ýmsa möguleika til að eyða mínum skattpeningum á skynsamlegri hátt, en að leyfa einhverjum bjánum að leika sér á kostnað skattborgarannaThumbDown

Tíminn á þyrlunni er lágmark hálf milla og það er fyrir utan mannskapinn...
"Of all tyrannies, a tyranny exercised for the good of its victims may be the most oppressive. It may be better to live under robber barons than under omnipotent moral busybodies. The robber baron's cruelty may sometimes sleep, his cupidity may at some point be satiated; but those who torment us for our own good will torment us without end, for they do so with the approval of their own conscience." -- C.S. Lewis
Kidlingur Offline
#4 Posted : 4. júlí 2009 16:20:44(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 13.4.2008(UTC)
Posts: 415
Location: hér og þar

wolfman wrote:

Já það ber vel í "veiði" og öllum ráðum beytt til að fá sem mestann peninginn í ríkissjóð ( ekki veitir af ), maður hefur það á tilfinningunni að hugsunin sé að reyna að nappa fólk með öllum tiltækum ráðum eins og að liggja í leyni og þess háttar kúnstir- alveg ömurlegt! Ef ætlunin er virkilega sú að stöðva eða koma í veg fyrir "hrað" akstur og fá bætt öryggi væri þá ekki sniðugra fyrir lögregluna að vera sýnileg í umferð eða við umferð heldur en að vera í einhverjum felu/njósna/eltingarleik???


Þetta er einmitt frábær punktur. Ef lögreglan væri að þessu til að auka umferðaröryggi þá mundi hún pottþétt vera eins sýnileg og hún gæti til að draga úr hraða.
Það hefur bara marg sýnt sig að þeir eru einmitt að þessu til að bösta fólk og jafnvel elta fólk á ofsahraða um allan bæ til að auka umferðaröryggi Liar .
Suzuki Hayabusa 2004
wolfman Offline
#5 Posted : 4. júlí 2009 16:40:08(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 9.4.2008(UTC)
Posts: 254

Palli wrote:
Svo er talað um niðurskurð. Ég sé ýmsa möguleika til að eyða mínum skattpeningum á skynsamlegri hátt, en að leyfa einhverjum bjánum að leika sér á kostnað skattborgarannaThumbDown

Tíminn á þyrlunni er lágmark hálf milla og það er fyrir utan mannskapinn...


já sammála en þeir eru sjálfsagt fljótir að ná inn fyrir kostnaði á helv... þyrlunni sko hehe Löggan Löggan Löggan Löggan Löggan Löggan Löggan

...en bíðum nú við hvað ef eitthvað stórt útkall ber að -sjóslys t.d ??? jæja ,jæja maður ættti kannski að slaka aðeins á hihi pissed Angel
runarpet Offline
#6 Posted : 4. júlí 2009 19:10:57(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 29.11.2006(UTC)
Posts: 2.605
Location: Reykjavík

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
Þetta kallast "Hræðslu áróður" og hann er klárlega að virka, því það tala allir um þetta og núna þorir engin að keyra hratt af ótta við þyrluna
Mótorhjól.is Vefverslun hjólafólksins
Hook1 Offline
#7 Posted : 5. júlí 2009 17:00:57(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 31.7.2008(UTC)
Posts: 221
Location: RVK

Verðum bara að horfast í augu við þá staðreynd að árangur lögreglunar er mældur í fjölda sektaboða sem þeir senda út, burtséð hver kostnaðurinn er við að senda út nokkra seðla aukalega og þá staðreynd að Landhelgisgæslan er alltaf að kvarta undan fjársvelti.
Lausnin gæti verið að ALLIR hætti að borga þessa seðla og ALLTAF að láta koma fram í skýrslunum að þetta séu borgaraleg mótmæli vegna aðstöðuleysis. naughty mc
Ég er ekki alveg að fíla það að vera alltaf að missa af einhverju.
Eftir að ég fékk radarvara er ég alltaf að missa af punktum og sektarboðum....
Ekki Þitt kerfi
Addi_Sig Offline
#8 Posted : 5. júlí 2009 23:57:17(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Palli wrote:
Svo er talað um niðurskurð. Ég sé ýmsa möguleika til að eyða mínum skattpeningum á skynsamlegri hátt, en að leyfa einhverjum bjánum að leika sér á kostnað skattborgarannaThumbDown

Tíminn á þyrlunni er lágmark hálf milla og það er fyrir utan mannskapinn...


Það er reyndar eitt sem ég vil benda á(fyrst ég er sjómaður) sem margir vita ekki, Þyrlan er skyldug til að fljúga viss mikið í mánuði til að halda þjálfun flugmannanna, ef þeir lenda ekki í útköllum eða einhverjum svona verkefnum þá taka þeir bara skrepp út að vestfjörðum eða eitthvað til að eyða þessari flugskyldu, þannig að það hlýst nú ekki beinn kostnaður af fluginu.

En ég neita ekki að þetta er frekar lélegt að koma svona úr leyni, þetta er bara auka skattur á þá sem sveigja reglurnar.
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook