Daginn.
Veit einhver hvar er gott að fara með hjól í viðgerð vegna rafmagnsvandræða?
Er með 1985 Honda Magna hjól sem hefur upp á síðkastið verið að missa einn og einn hlut úr sambandi. Fyrst fór flautan, svo stöðuljósið í stefniljósinu vinstra megin og svo í dag hætti aðal ljósið að virka hjá mér.
Ef þið vitið um einhvern góðan og hæfan til að takast á við svona vandamál megið þið endilega láta mig vita.
Kveðja.
Ívar.