Sælir.
Ég hef reyndar verið að fylgjast með spjallinu lengi, en ekki tjáð mig mikið sjálfur þar sem ég hef ekki átt hjól og einhvernvegin ekki fundist ég passa inn þessvegna.
Nú er hinsvegar komið að því að kaupa sér fyrsta hjólið líklega á næstu vikum og þessvegna er ég að velta þessari spurningu fyrir mér, með hversu gáfulegt sé að fá sér racer sem fyrsta hjól?
Ég hefði mestan áhuga á að kaupa mér 600cc racer, eða nakið. Er eitthvað sem þið getið mælt með frekar en annað og afhverju?
Ég hef t.d. sest upp á '05 árgerð af CBR-rr nýlega og fílaði ásetuna á því í tætlur. Ég er frekar lítill og nettur (svona þannig séð) og fannst ég ná betur niður af því en mörgu sem ég hef prófað. Hvernig eru þessi hjól að höndla?
Ég er meira að leita eftir einhverju fyrirsjáanlegu í akstri en einhverju keppnistæki, er ekki mikill speeddeamon, bara hrifnari af racer vegna einhvers sem ég get ekki skýrt.
Allavegana, þá væru góð ráð vel þegin, en annars væri bara vel þegið ef þið mynduð sleppa að rugla í mér!

Alveg nógu ringlaður, sko...
Jónatan Jónsson
Honda CBR 600rr