Ég fór út að hjóla í gær, gekk allt eins og það á að gera.
Svo stoppa ég á einum stað í klukkutíma. Kem út og sný lyklinum í svissinum, set í neutral tek í kúplinguna og starta hjólinu...allt lokkar eðlilega.
Um leið og ég sleppi kúplingunni þá deyr hjólið.

Mótorinn drap ekki bara á sér, heldur fór allt rafmagn af hjólinu líka. Núna gerist ekkert þegar ég sný lyklinum í svissinum...engin ljós, engin bensíndæla og ekki neitt.
Hafið þið einhverja hugmynd hvað þetta gæti verið?
Þarf að koma þessu í lag
,,ef þú hefur ekkert gáfulegt til málanna að leggja, skaltu bara þegja"