Ég sé ekki að það sé sagt neitt um hvor átti sökina í þessari frétt en sammála um að þær eru ansi oft skrifaðar þannig að ekki er tekið fram ef bílstjóri bílsins á sökina en ef ökumaður hjólsins gerir rangt þá er það tekið fram um leið og miklað eins og mögulegt er.
Mér finnst bara þetta orðalag að bifhjólamaður datt í götuna fáránlegt það er í svo til öllum fréttum um bifhjólaslys... hvað annað gerist þegar við lendum í slysi búast þeir við því að við sitjum áfram á hjólinu uppréttu
Þetta er álíka fáránleg settning og að segja í frétt að bíll sem lendir í slysi stoppaði við árekstur eða rispaðist.
Vona bara að maðurinn nái sér sem fyrst og sé sem allra minnst slasaður.