Tilkeyrslan á netsíðu mototuneusa segir EKKI að það eigi að setja í botn strax heldur smátt og smátt og í réttum skömmtum.
Rannsóknir hafa sýnt að 84% tilkeyrsla/slípun á stimpilhringjum eigi sér stað fyrstu 22 mínúturnar.
Það er 12 meira slit/tilkeyrsla á fyrsta klukkutímanum heldur en næstu 2 tímana.
Það er ástæða þess að það er lagt svo mikil áhersla á að tilkeyra rétt fyrsta klukkutímann, svo má fylgja ráðleggingum framleiðanda ef að einhver er áhyggjufullur og til að friða samviskuna.
Hættan við ráðleggingar framleiðanda er að það getur myndast mikið sót í vélinni sem minnkar afl og getur myndað "Coke formation" eða myndað glanshúð á strokkana sem gerir það að verkum að hringirnir þétta ekki og vélin tapar afli og brennir meiri olíu en æskilegt er, sem sest svo á stimpilkoll, ventla, ventlasæti og veldur því að vélin tapar afli og getur brennt ventla.
Mér langar að vita tilkeyrslu ráðleggingar á GSXR1000 K7 og langar að spurja þann sem að sagði að aflið gæti dottið niður í 80% á vélum með L laga hringjum ef að tilkeyrslu ráðleggingum er ekki fylgt "Hvort að það séu sömu tilkeyrslu ráðleggingar á GSXR1000 K7 og RMZ450" þar sem að báðar vélarnar eru með L hringjum sem og í
öðrum vélum frá Suzuki.
Mér þætti gaman að hlusta á þennan sérfræðing segja þeim sem að aka RMZ krossurunum og þeim keppnisliðum sem að nota GSXR1000K7 í keppnum að tilkeyra til tunglsins og til baka, annars skilaði vélin ekki nema 80% afli.
L laga hringir eru L laga, það er að segja að sá hluti sem að situr í stimplinum er mun grennri en sá hluti sem að snýr að strokknum og þéttir.
BMW S1000RR