frétt um hávada í hjólunum... o
gaman ad sjá ad thad er pínu virding gagnvart hjólafólki sett í thetta.\
Fengid af MBL.isTalsvert hefur verið um kvartanir til lögreglu vegna hávaða frá bifhjólamönnum sem leggja leið sína á Ingólfstorg í Reykjavík. Tilkynnendum finnst m.a að bifhjólin séu á köflum þanin svo mikið að ónæði hljótist af.
Vegna þessa fór lögreglan á Ingólfstorg fyrir helgina og hitti þar bifhjólamenn að máli. Hinir síðarnefndu voru beðnir um að taka meira tillit til þeirra sem búa og starfa á þessu svæði og var erindi lögreglunnar mjög vel tekið.
Sem fyrr mun lögreglan kappkosta að eiga gott samstarf við bifhjólamenn, hér eftir sem hingað til.Það skal jafnframt áréttað að bifhjólamenn eru almennt til fyrirmyndar í umferðinni en fáeinir úr þeirra röðum geta auðveldalega varpað rýrð á allan hópinn. Svo virðist hafa verið í þessu tilfelli, segir í tilkynningu frá lögreglunni.if you don´t like who i am, or what i do, you can just fuck off.