Kidlingur wrote:busa wrote:Kidlingur wrote:Já ég á mjög erfitt með að vorkenna svona fíflum. Í þessi fáu skipti sem ég keyri á þess að vera í galla þá er ég mjög rólegur á gjöfinni og ekki að fara langar leiðir.
Get alveg lofað þér því að mörg slys gerast á stuttum leiðum þegar við erum sem rólegastir.
Já auðvitað er það séns sem ég tek þegar ég keyri hlífa laus en ég er ekki að margfalda áhættuna með að gera stunt þegar ég er hlífa laus.
Fyndið samt hvað manni líður berrössuðum þegar maður keyrir án gallans
Já, þegar ég krassaði Busunni minni ætlaði ég bara að skjótast og ná í hárklippur, ákvað sem betur fer einhverra hluta vegna að fara í allan gallann.
Þess vegna tók ég þá ákvörðun að kaupa heilgalla núna svo að ég gæti ekki freistast út bara á jakkanum.