Ég gat ekki varist að fá svona "argh!".
Svo eftir smá umhugsun fannst mér rangt að setja út á orðaval fólks, stuðarinn er væntanlega afturbretti með tilheyrandi dóti.
Perustefnuljós blikka hraðar ef aðra peruna vantar eða er dáin.
Díóðublikkarar eru með klukku sem ákveður hvenær á að blikka, gamla kerfið stjórnaðist af álaginu.
Ég argaði þegar ég las um vírbursta á borvél og kerti, en fyrst það virkaði, þá virkaði það.
Flestir skipta alveg um kertin í dag, en ég man eftir að hamast með vírburstanum á kertunum fyrir tæpum 30 árum....
Á hverju ári eða svo eru gefnar út alveg ágætar bækur fyrir hjólafólk um viðhald, umhirðu, tjúningar etc etc, ekki svo galið að fá sér eina ef maður er feiminn við að spyrja um einföldustu hluti.
Ég er farinn út í skúr að leita að afturstuðaranum af prilunni, ég man eftir að hafa séð hann einhversstaðar.....
Bæn mín til Frikkans: " PRRRUMMMPP!"