Ruddar
forsíða umsókn í Rudda atburðir myndir lög og reglur fróðleikur sektareiknir þjónustubækur
Welcome Guest! To enable all features please try to register or login.

Tilkynning

Icon
Error

Það er frosið í helvíti!! og gangtruflanir í súkkunni!
pbl10 Offline
#1 Posted : 18. júní 2008 11:19:16(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

Sælir snillingar..

Ég er nýr í götuhjólabransanum og er með gsxr 750 '95 árg.

málið er að hjólið gengur mjög vel og fer í gang eins og ekkert sé og svona fyrstu mínútuna eftir að ég fer af stað þá finn ég lítið sem ekkert að (en samt er smá skítur í því)..en svo þegar ég er kominn af stað þá kemur bölvað hikst og hökt á milli 3500-5000 rpm, og þá Þarf ég að gefa aðeins í yfir 5000rpm en eftir það er það eins og hugur manns og ekkert hik..

Ég er nýbúinn að kaupa það og mér var sagt að kertin væru mjög nýleg (innan við mánaðar gömul) og ég er búinn að kíkja á loftsíuna og blása úr henni (var ekki með nýja við hendina, en hún fer í fljótlega)..

Og nú er ég með tvær spurningar fyrir ykkur sérfræðingana..

Hvað haldið þið að sé að hjólinu? og hvert get ég farið með það til að fá þetta lagað?

Bullzeye
Suzuki GSXR 750 1995
Sponsor
Xodus ehf
GULAG Offline
#2 Posted : 18. júní 2008 11:42:40(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.291
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
byrja á því að þrífa blöndungana .....
Support 182144118
pbl10 Offline
#3 Posted : 18. júní 2008 12:01:30(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

ok, við erum þá að tala um að taka þá úr, taka í sundur, þrífa og setja saman aftur....

Annars var ég eitthvað búinn að heyra að það þyrfti að stilla blöndungana saman og þessi bilun hljómaði eins og það væri kominn tími á það.. gæti það verið rétt?? hver gerir þá svoleiðis?

Bullzeye
Suzuki GSXR 750 1995
GULAG Offline
#4 Posted : 18. júní 2008 12:15:46(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.291
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
já, taka þá úr, opna þá, gott að nota Carburator cleaner og spreyja þá með því, láta það aðeins liggja og blása svo út með háþrýstilofti.

Samstillingin hefur varla þessi áhrif að hjólið fari að freta og láta illa, þegar hjólin eru aðeins farin að ganga skrykkjótt í hægagangi þarf oft að samstilla torana en hefur nánast engin áhrif á snúning.

Ég get samstillt þetta fyrir þig, en þeir verða að vera í hjólinu og hjólið í gangi til að gera það.
Support 182144118
pbl10 Offline
#5 Posted : 18. júní 2008 12:24:52(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

Takk fyrir það, ég fer í að rífa í sundur og þrífa í kvöld...

Bullzeye
Suzuki GSXR 750 1995
CBR1000RR Offline
#6 Posted : 18. júní 2008 13:20:26(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 5.7.2007(UTC)
Posts: 758
Man
Location: hér og þar

Persónulega myndi ég byrja á því að kanna með öndunina og kanna með slöngur sem eru tengdar undir tanknum hvort þær séu klemmdar ef ekki þá taka tora og þrífa
Gix1078 Offline
#7 Posted : 18. júní 2008 15:59:42(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 3.634
Man
Location: útlönd

Ef það væru klemmdar slöngur myndi það versna á hærri snúning.. það lagast hjá honum eftir 5000rpm.. þvingun eða þrenging myndi hafa meiri áhrif því meiri sem snúningurinn er.
if you don´t like who i am, or what i do, you can just fuck off.
CBR1000RR Offline
#8 Posted : 18. júní 2008 16:38:49(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 5.7.2007(UTC)
Posts: 758
Man
Location: hér og þar

Ég er búinn að lenda í þessu 2 sinum og í bæði skipin var þetta að á CBR600 hjóli sem konan var með og hitt skiptið var það GPZ sem ég var á reyndar var þá farinn af vagum slanga. virkaði fínt niðir og efst uppi. En þetta er það sem ég myndi byrja á að skoða ef það er ekki það sem er að þá Torar.
Reyndar myndi ég giska á Tora en hitt er auðvelt að skoða þegar þú er að takka þetta í sundur.
pbl10 Offline
#9 Posted : 20. júní 2008 11:30:34(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

ok ég er búinn að taka blöndungana af og rífa í spað og þrífa með carb cleaner og þrýstilofti, setja þá saman aftur og smella í gang og það er nákvæmlega eins!!
ég sá engar slöngur sem gætu verið klemmdar eða lokaðar en það er loft stútur á lokinu á öllum blöndungunum og á þessum tveimur í miðjunni er bara hetta á þeim og lokað fyrir þá, á þessum sem er vinstra megin er slanga sem fer uppí tank (og stýrir væntanlega bensínflæðinu...undirþrýstingsdæmi eitthvað) en stúturinn sem er á blöndungnum lengst til hægri er bara opinn útí loftið??? gæti það verið að hafa þessi áhrif? ég á eftir að finna mér hettu eða eitthvað til að loka honum og prófa það með stútinn lokaðann....

En svo var einhver (vonandi) fróðari en ég sem sagði mér að þetta væri mjög líklega jettarnir í blöndungnum...
Það er búið að skipta um púst og ég hef ekki hugmynd um hvort það var skipt um jetta líka, en hann vildi meina að það þyrfti að gera það á þessum hjólum þegar það er skipt um púst til að breyta loft-bensín flæðinu (eitthvað svipað dæmi og með power commander á innspýtingunni)?? vitið þið eitthvað um það? gæti það verið málið?

Takk fyrir svörin so far, ég er alveg lost í þessu hérna megin..


Addi_Sig Offline
#10 Posted : 20. júní 2008 11:33:23(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Þessi bilun getur líka komið fram ef það er búið að breyta pústkerfinu en ekkert búið að eiga við blöndungana.

Ef svo er þá þarf að jetta blöndungana upp.

Eins og þú lýsir þessu þá er vandamálið á því snúningssviði þar sem main jet er að taka við af pilot jet.

Ef þú finnur ekkert augljóst vandamál (drullu í blöndungum, eða skemmdar slöngur eða ónýta o-hringi inní blöndungnum) þá geturu líka prófað að skrúfa loftskrúfurnar (pilot jet) undir blöndungunum u.þ.b. 1/2 hring út og sjá hvort þetta lagast ekki aðeins.

Athugaðu líka hvort gúmmítapparnir sem hindra að pilot jet geti tekið bensín framhjá main jet séu ekki örugglega allir í, ég lenti í því einu sinni, en þá minnir mig reyndar að hjólið hafi verið alveg ómögulegt eftir 4000 sn/min.

Þetta ætti að vera nóg til að byrja á, þetta eru drepleiðinleg vanda mál að finna út úr þegar þau byrja og geta tekið drjúgan tíma og prófanir að finna út hvað sé best að gera fyrir þitt hjól

KV
Addi
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
Addi_Sig Offline
#11 Posted : 20. júní 2008 11:38:48(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Það er nákvæmlega þetta sem málið snýst um, jettarnir eru að gera það sama og Powercommander.
Þessi hetta ætti ekki að hafa þessi áhrif, en veldur því að vélin dregur falskt loft á einum sílender og gengur þessvegna heitari á þeim eina, endilega finndu eitthvað til að loka þessu.
Þú getur prófað eins og ég sagði að skrúfa loftskrúfurnar meira út, en ég er ekki viss um hvort það hjálpar eitthvað ef það er ekki búið að skipta um jetta.
Ég keypti mér sett frá Dynojet á Ebay fyrir gamla hjólið mitt og þar eru greinagóðar lýsingar á helstu vandamálum varðandi blöndungana og hvernig á að leysa úr þeim
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
pbl10 Offline
#12 Posted : 20. júní 2008 12:40:15(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

Takk fyrir þetta....
ÉG fer í að leita á netinu að nýjum jettum og set lok á þennan stút...
kem með fréttir af því hvernig til tekst vonandi sem fyrst!

En er ég að skemma eitthvað með því að vera að keyra hjólið svona??
Það er ekkert mál að keyra það ef ég er bara ekkert að hanga á þessum snúning 3500-5000rpm... ef ég sný bara hressilega uppá gjöfina þá kemur kannski eitt hikst strax í upphafi en svo gengur það bara eins og eðlilega yfir þetta og ég skipti um gír og sný aftur uppá gjöfina og þá er ég ekki að finna neitt að..allt uppá snúning eins og ekkert sé..

Getur það ekki verið að þá sé ég búinn að opna það vel fyrir bensín og loft inná mótorinn að það sé í lagi, en ef ég er að reyna að keyra á bara 4000rpm þá er eitthvert ósamræmi í blöndunni..

en ég fer í jetta bransann núna..
GULAG Offline
#13 Posted : 20. júní 2008 12:46:14(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.291
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
þú átt ekkert að skemma neitt..
fylgstu bara aðeins með kertunum. ...

Support 182144118
Addi_Sig Offline
#14 Posted : 20. júní 2008 14:58:05(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Sko...
Ef það er búið að eiga við pústið þannig að það hefur opnast eitthvað meira, þá er smá séns að það komi gat á stimpil ef að blandan ef of magur (þá gengur vélin of heit), liturinn á kertunum á að gefa það til kynna, ef kertin eru alveg kolsvört þá er vélin að fá alltof sterka blöndu.
Ef hún er of magur þá hvítnar armurinn yfir platínunni og platínan verður rúnuð í staðinn fyrir hvössu brúnirnar sem eru yfirleitt.

En ef þú ætlar að keyra hjólið eitthvað svona þá skaltu auka við loftskrúfurnar 1/2 til 1 hring, og ath. hvort hjólið skánar ekki í akstri. Og fyrir alla muni, lokaðu mælastútnum á blöndungnum.

Kv
Addi
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
pbl10 Offline
#15 Posted : 20. júní 2008 17:23:03(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

kominn með hettu til að setja yfir stútinn á blöndungnum...
og búinn að finna jetta á dynojet.com, en ég er að spá hvort það sé ekki sniðugt að setja racefilter í leiðinni og panta bæði í einu að utan...
Þekkið þið einhverjar góðar hjóla/aukahluta búðir sem væri séns á að fá bæði jetta og racefilter??
CBR1000RR Offline
#16 Posted : 20. júní 2008 17:47:33(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 5.7.2007(UTC)
Posts: 758
Man
Location: hér og þar

Unnar er með Dynojet á Íslandi. Hann selur þér rétta jeta og setur þetta í og stillir fyrir smá pening ég létt hann gera þetta við gamalt CBR900RR sem ég átti ég var mjög kátur með það ThumbsUp

http://www.dynojet.is/
Kidlingur Offline
#17 Posted : 20. júní 2008 18:18:36(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 13.4.2008(UTC)
Posts: 415
Location: hér og þar

Er þetta svarta 750 súkkan sem er með fjólubláu felgunum?
Ef svo er þá stóð það hjól úti tölvuvert eftir að það fór að snjóa og það neitaði eðlilega að fara í gang fyrst í vor.
Ég veit ekki hvort um sama hjól er að ræða en ef svo er þá mundi ég kíkja á filter í tanknum, skipta á olíu, kerti, þræðirnir áttu jafnvel að vera slappir heyrði ég og svo var einhver skynjari ótengdur fyrir hitann á hjólinu minnir mig.
Suzuki Hayabusa 2004
Addi_Sig Offline
#18 Posted : 21. júní 2008 00:03:59(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 11.11.2007(UTC)
Posts: 158
Location: Keflavík

Þessir ættu að passa hjá þér.
Ég keypti mína þarna, en þá vissi ég ekki af Unnari.
Ef maður hefur smá vélavit þá er mjög lærdómsríkt að basla gegnum þetta sjálfur.
Annars hef ég ekki heyrt neitt annað en gott af Unnari, og hann er pottþétt sneggri að fá þetta til að virka rétt.
Ég sagði ekki að þetta væri þér að kenna,
ég sagðist ætla að kenna ÞÉR um þetta

A.K.A. Startarinn
Skotfljótir
Arctic MC
NÓGPWR
pbl10 Offline
#19 Posted : 26. nóvember 2008 13:09:57(UTC)
Rank: Nýliði

Groups: Meðlimur
Joined: 27.5.2008(UTC)
Posts: 14
Location: Reykjavík

Hjólið er komið í lag... reyndar svoldið síðan, en ég fór með það til unnars í dynojet og hann pantaði í það nýja jetta, skipti svo um þá og stillti allt saman... hjólið er að virka fínt eftir það...

Og fyrst að mótorinn er orðinn góður þá er útlitið eftir, er búinn að rífa plöstin af til að láta sprauta og er að spá í að láta sandblása og pólýhúða felgurnar...
ég gerði það við bílafelgur sem ég átti og þær voru fínar á eftir, þekkið þið það hvort þetta gangi ekki líka á hjólafelgum??

Og ef einhver á heilt framljós á svona hjól þá er ég til í svoleiðis!

Takk annars fyrir góð ráð!

kv.
Pálmi
GULAG Offline
#20 Posted : 26. nóvember 2008 13:14:26(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Ruddar, Stjórnandi
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 4.291
Man
Location: Hafnir City

Was thanked: 1 time(s) in 1 post(s)
ég huxa að ég eigi framljós handa þér, kemur af Srad 750 1996..
Support 182144118
RR Offline
#21 Posted : 26. nóvember 2008 17:10:33(UTC)

Rank: Ruddi

Groups: Meðlimur, Ruddar, Stjórnandi
Joined: 28.11.2006(UTC)
Posts: 1.158
Man

GULAG wrote:
ég huxa að ég eigi framljós handa þér, kemur af Srad 750 1996..

Það passar ekki á '95 hjólið

1995 GSXR


1996 GSXR (SRAD)

HTC Desire HD (Android 2.3)
HTC HD2 (Windows 6.5)
Iphone 4 32gb (iOS 4.3.3)
Samsung Galaxy S (Android 2.3)
Samsung Galaxy S II (Android 2.3)
Samsung Galaxy Note (Android 2.3)
Sony Ericsson Arc (Android 2.3)
Sony Ericsson X10 (Android 2.1)
Sony Ericsson X10 mini pro (Android 2.1)
Sony Ericsson C905
Sony Ericsson K850i
Sony Ericsson K800i
Sony Ericsson K750i
Gix1078 Offline
#22 Posted : 26. nóvember 2008 17:15:54(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 24.11.2006(UTC)
Posts: 3.634
Man
Location: útlönd

pbl10 wrote:
Hjólið er komið í lag... reyndar svoldið síðan, en ég fór með það til unnars í dynojet og hann pantaði í það nýja jetta, skipti svo um þá og stillti allt saman... hjólið er að virka fínt eftir það...

Og fyrst að mótorinn er orðinn góður þá er útlitið eftir, er búinn að rífa plöstin af til að láta sprauta og er að spá í að láta sandblása og pólýhúða felgurnar...
ég gerði það við bílafelgur sem ég átti og þær voru fínar á eftir, þekkið þið það hvort þetta gangi ekki líka á hjólafelgum??

Og ef einhver á heilt framljós á svona hjól þá er ég til í svoleiðis!

Takk annars fyrir góð ráð!

kv.
Pálmi


Polyhúðun á smiðjuvegi gerir þetta..
Ferð bara með felgurnar til þeirra, þeir blása þær, og þú velur bara litinn hjá þeim. og þeir húða þær líka.. bara flottir í þessu!!
if you don´t like who i am, or what i do, you can just fuck off.
Kidlingur Offline
#23 Posted : 11. desember 2008 01:59:26(UTC)

Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 13.4.2008(UTC)
Posts: 415
Location: hér og þar

Gix veistu hvað þetta kostar?
Suzuki Hayabusa 2004
Haffman Offline
#24 Posted : 12. desember 2008 17:36:37(UTC)
Rank: Meðlimur

Groups: Meðlimur
Joined: 20.1.2007(UTC)
Posts: 949

RR wrote:
GULAG wrote:
ég huxa að ég eigi framljós handa þér, kemur af Srad 750 1996..

Það passar ekki á '95 hjólið

1995 GSXR


1996 GSXR (SRAD)



Samt ekkert flottara en þetta 91 Modelið
Haffman attached the following image(s):
Haffman attached the following image(s): Vanilla_Ice_Cool_as_Ice.jpg
Users browsing this topic
Gestur Gestsson
Forum Jump  
You cannot post new topics in this forum.
You cannot reply to topics in this forum.
You cannot delete your posts in this forum.
You cannot edit your posts in this forum.
You cannot create polls in this forum.
You cannot vote in polls in this forum.

Black-Grey Theme Created by Ingo Herbote (WatchersNET.de)
Knúið af YAF | YAF © 2003-2010, Yet Another Forum.NET
Heyrst hefur
 
 
Netverslanir eshop
 
Fornmerki bifhjóla
 
 
 
 
 


- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com - Deila á Facebook