Gix1070 wrote:Ég lét setja Dyno jet Quick shift á súkkuna..
Þeir fá fína dóma, plús að þú getur tímastillt cutout-ið fyrir hvern gír fyrir sig, svo eins og til dæmis milli fyrsta og annars hefurðu lengri tíma, þar sem þú þarft lengri tíma til að skipta þar sem þú ferð yfir hlutlausa gírinn.
Félagi minn er t.d. með tellert Quick shift, og það var bara vandamál á mílunni milli fyrsta og annars.
Dynojet hraðskiptarnir eru fínir eins og allt sem kemur frá Dynojet, gallinn við þó er sá að hann er ekki með signal til að sjá færsluna og því ekki eins hraður eins og Tellert skiptirinn og ekki eins mjúkur í skiptingum.
Það er ekki að ástæðulausu að CTS skiptirinn er það sem er notað í World Superbike og GP keppnunum af flestum liðunum.
Eini gallinn við CTS skiptirinn er verðið því hann hefur verið 3 sinnum dýrari en Dynojet skiptirinn sem kostar einungis tæp 30þ.
Dynojet skiptirinn er forritaður fyrir hvað langur útsláttur er á milli gíra, og er mjög mikilvægt að það sé settur aðeins lengri tími inn fyrir útslátt en það tekur að skipta því að hann hefur ekki signal fyrir færslu til að slá kveikjunni inn aftur.
Sem dæmi ef að skipting tekur 5-7 msek þá verður að setja inn 7 msek útslátt til að kveikjan komi ekki inn fyrr en skiptingu er lokið, vegna þess að ef að kveikjan kemur inn áður en skiptingu er lokið feilar skiptingin og er þá hjólið enn í sama gír, þetta táknar töpuð spyrna. Ef að skiptingin tekur svo 5 msek. þá tapast 2 msek á hverri skiptingu og það hefur mikil áhrif á mýkt skiptingarinnar og tapast töluvert hröðunar moment einnig við að skipting taki lengri tíma.
CTS Tellert skiptirinn er með fastan útslátt, en hefur rofa sem skynjar færsluna á gírstönginni og slær kveikjunni inn um leið og skiptingu er lokið og tapast því ekki dýrmætar msek, mýkt og hröðunar moment við hverja skiptingu, CTS Tellert er einnig með mun fullkomnara forrit sem metur hraða skiptingarinnar miðað við snúning vélarinnar og er því mýktin í hámarki og er það því ein aðalástæðan að flest keppnisliðin velja CTS Tellert í keppnum þar sem það þarf að vera hægt að nota skiptirinn við mismunandi inngjöf/snúning og hraða í beygjum, eitthvað sem að aðrir skiptar eru ekki nothæfir í nema þeir séu með innsláttarrofa.
Ef að vinur þinn hefur verið í vandræðum með CTS Tellert skiptirinn er það vegna þess að hann er annað hvort vitlaust stilltur eða notaður vitlaust.
Færslan á milli fyrsta og annars gírs er lengri en á milli annara gíra vegna þess að það þarf að vera hlutlaus á milli 1 og 2 gírs á skiptitromlunni.
Ef að þú stillir innsláttinn til að vera nægur fyrir skiptingu á milli 1 og 2 er skiptingin vandræðalaus en því miður verða þá skiptingarnar á milli allra hinna gíranna aðeins lengri vegna þess að færslan á gírstönginni þarf að vera lengri til að skiptirinn slái inn kveikjunni.
Persónulega stilli ég innsláttinn á milli 3-4 gírs og nota ekki skiptirinn ekki á milli 1 og 2 gírs þar sem að ég er ekki búin að sleppa kúplingunni í spyrnum þegar ég skipti í 2 gír og vill geta snuðað yfir í 2 gír til að hjólið rjúki ekki í prjón og hafa svo hraðari skiptingar restina af spyrnunni án þess að vera tapa 1-2 msek í hverri skiptingu.
CTS Tellert er ekki seldur í verslunum svo að ég viti og hefur einungis verið seldur keppendum og keppnisliðum og yfirleitt ákomin til að útiloka svona misskilning.
Flest keppnishjólin í heimsmeistaramótunum er með sérstakar skiptitromlur sem að hafa ekki eins langt bil á milli 1 og 2 þar sem að hlutlaus skiptir litlu máli í keppnum og er mun æskilegra að það sé stutt bil á milli 1 og 2 en að það sé auðvelt að setja í hlutlausan.
Einnig langar mig að benda á til að minnka líkur á misskilningi að Dynojet skiptarnir slá út innsprautunarspíssunum (ekki kveikjunni eins og ég sagði hér að ofan til einföldunar) og eru því ekki til fyrir blöndungshjól.
Ég hef kennt öllum þeim sem að hafa fengið hjá mér CTS skipta hvernig þeir virka og er þetta 1-2 gírs, ekki vandamál heldur annað hvort misskilningur á milli mín og vinar þíns eða á milli þín og vinar þíns.
Ég notaði CTS Tellert í þau ár sem að ég keppti á mílunni og hef sett endalaust mörg Íslandsmet með honum og eru flest Íslandsmet seinni ára sett með CTS skiptir.
En fólki er frjálst að velja Dynojet eða CTS Tellert og er ég dreifingaraðili fyrir báða þessa skipta.
Ef að einhverjum langar að spyrjast frekar um þá endilega hafið samband á
dynojet@dynojet.isBMW S1000RR