Iceberg wrote:Nosferatu wrote:Úff Úff!
Bæði R1R6 og Gulag hafa rétt fyrir sér en engin ástæða til að fara að rífast
Góðan dag Nosferatu
Lestu greinina hans Gulag aftur, umræðan byrjaði nú einmitt vegna þess að Gulag skrifaði nítró-greinina án þess að minnast einu orði á aðal eiginleika þessa magnaða gass.
Þannig nú þegar öll kurl eru kominn til grafar, þá er spurning hvort hann ætti ekki að endurgera greinina þannig að þeir sem áhuga hafa á nítró og notkun þess geti haft af henni bæði gagn og gaman.
Kv
Ég er sammála því að það var hægt að bæta ýmsu við greinina en oft er betra að benda á það kurteislega og útskýra ástæðuna án þess að segja að heil grein sé steypa.
Við erum því miður ekki öll svo klár að við getum skrifað greinar svo ítarlegar að ekki sé hægt að bæta neinu við.
Of ítarlegar greinar eru líka oft erfiðar í lestri og missa því oft marks vegna þess að þær verða stundum ekki auðskiljanlegar en duga oft til að menn fá áhuga og kynna sér málin betur eða að þær kalla fram spjallverja sem vilja við bæta og skapa því oft skemmtilegar umræður, sem því miður varð ekki raunin hér.
Vinir allir?
BMW S1000RR