Hvers vegna krössum við?
1. Við krössum á köldum dekkjum. Gefum okkur tíma til að hita þau upp, sérstaklega ef þau eru glæný. Eftir pásur munið eftir að þið eruð ekki þau einu sem hafa kólnað, takið ykkur tíma til að hita dekkin upp aftur.
2. Við krössum þegar við setjum of mikla krafta á dekkin. Ef þú ert nýliði eða ryðgaður eftir veturinn, þá getur reynst dýrkeypt að gefa of vel inn eða bremsa of harkalega í beygju.
Dekkin geta gefið okkur frábært grip en þau eru ekki ónæm fyrir “blýhöndum”.
3. Við krössum þegar við erum að reyna að halda í við aðra. Hraði næsta hjóls hefur lítið að gera með hjólið en allt að gera með hjólarann. Hjólaðu í samræmi við þína getu. Félagar þínir geta þá bara stoppað og beðið í smá stund á meðan þú nærð þeim.
4. Við krössum því við viljum fara hratt. Stundum á hraði bara ekki við. Að rúlla yfir blindhæð á 60 getur reynst of hratt ef þú getur ekki stoppað hjólið áður en þú lendir á hindrun sem þú sást ekki. Hraði styttir tímann sem við höfum til að bregðast við og lengir stöðvunarvegalengd okkar.
5. Við krössum því við guggnum. Hversu oft hefur maður farið hratt inn í beygju og rétt hjólið upp til að stoppa því maður telur sig ekki ná beygjunni.
Of hratt þýðir oftast að hausinn á okkur segir of hratt en hjólið og dekkin ráða við hraðann. Horfðu í gegnum beygjuna, hallaðu hjólinu þar til pedalar fara að rekast niður og hafðu trú á dekkinu.
6. Við krössum því við missum einbeitingu. Hjólið ferðast u.þ.b. 28 metra á sekúndu á 100 km hraða. Ein sekúnda þar sem við töpum einbeitingu getur þýtt að maður er kominn mun dýpra inn í beygju en maður ætlaði sér. Hugsaðu um næstu beygju, ekki þessa síðustu sem þú klúðraðir. Hún er búin og nú er að snúa sér að því að taka þá næstu rétt.
7. Við krössum því við förum of hratt inn í beygjuna. Hægt inn, hratt út hefur virkað fyrir kappakstursmenn árum saman og það sama virkar fyrir götuhjólara líka. Hægðu aðeins á þér áður en þú ferð inn í beygjuna og sjáðu hversu mikið mýkri þú verður.
8. Við krössum því við höldum ekki í við hjólið. Vertu viss um að hausinn á þér sé nægilega sterkur fyrir það sem hjólið býr yfir. Þó hjólið hafi getu til að komast á 300 km/klst, þýðir ekki að þú hafir hana.
9. Við krössum þegar við erum að reyna að vera töff. Ef þú þarft að prjóna, gera stoppie og önnur stönt til að hækka í áliti hjá vinum þínum, finndu þér þá nýja vini.
Lífsstíll hjólafólks og löngun til að ná valdi yfir tveggja hjóla ökutækjum fylgja ýmsar hættur. Reynið að hafa þessa hluti á listanum bakvið eyrað þegar þið hjólið.
Farið út, skemmtið ykkur og hjólið af krafti, en markmiðið er alltaf að koma heill heim!
Úps... stolið login. Það er Mrs. Yu sem prédikar!